Berg fasteignasala kynnir:
Rauðás 19, 110 Reykjavík, Eignin Rauðás 19 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 204-6245, birt stærð 80.6 fm.Mjög vel staðsett , þriggja herbergja íbuð á 2. hæð í 3ja. hæða fjölbýli á frábærum stað í útjaðri byggðar. Glæsilegt útsýni. Eignin er með tvennum svölum.
Nánari lýsing: Komið er í
anddyri/hol með steinflísum á gólfi. Til hægri úr anddyri/holi er
rúmgott herbergi. Eikarparket á gólfi. Fataskápur.
Eldhúsið er með góðri innréttingu sem nær uppí loft. Steinflísar á eldhúsgólfi. Góð eldhústæki. Opið úr eldhúsi í
stofu. Eikarparket á stofu. Útgengt á
svalir sem snúa í vestur. Til vinstri úr holi er herbergisgangur.
Baðherbergið er með flísalögnum og baðkari. Góður gluggi á baðherbergi.
Rúmgott herbergi með eikarparketi og stórum skápum.
Útgengt úr herbergi á svalir sem snúa í suður . Frábært útsýni af svölum yfir Rauðavatn og til fjalla ss. Hengils og Bláfjalla. Í kjallara er rúmgóð
sér geymsla sem fylgir eigninni. Hillur í geymslu.
Sameiginlegt, rúmgott þvottahús þar sem hver íbúð er með sína þvottavél. Hjólageymsla. Stutt í óspillta náttúru og flottar gönguleiðir. Næg bílastaði og gott aðgengi að fjölbýlishúsinu. Snyrtileg lóð og stórar grafslatir sunnan við húsið. Skógivaxin hlíð neðan við húsið. Þetta er flott eign á vinsælum stað.
Nánari upplýsingar veitir;
Pétur Pétursson , í síma 897-0047, tölvupóstur [email protected].