Berg fasteignasala kynnir:
Reykjahvoll 13 í Mosfellsbæ. 1
79,2 fm. tveggja hæða hús á fögrum stað innst í Reykjahverfi í Mosfellsbæ. Húsið er timburhús á steyptum sökli. Eigninni fylgir bílskúr.
Lóðin er stór. 2.268 fm. eignarlóð. Komið er að töluverðu viðhaldi á eigninni. Húsið staðsett á bökkum Varmár með garði umhverfis með trjám og runnum. Mjög stór garður sem komin er tími á að endurvinna og snyrta. Hentar vel fólki með græna fingur.
Búið er að skipta út frárennslögnum. Nánari lýsing:
Á neðri hæð er
stofa, eldhús og
tvö svefnherbergi. Þvottahús og
baðherbergi. Gróðurhús í garði.
Á efri hæð eru
tvö herbergi undir súð. Undir húsinu er ca.
20 fm. kjallari sem nýtist vel sem geymsla. Bílskúrinn er rúmgóður. Ofnalagnir endurnýjaðar að hluta. Þakrennur og þakskyggni endurnýjað.
Þessi eign býður upp á mikla möguleika, frábær staðsetning og stór lóð bjóða uppá margt spennandi fyrir nýja eigendur. Allar nánari uppl. og ráðgjöf hjá BERG fasteignasölu hjá Pétri s. 897-0047 eða [email protected]