Dynskógar 1 á Egilsstöðum. Laus við kaupsamning. Vel staðsett
136,4 fm. einbýlishús í góðu viðhaldi
ásamt 63 fm. bílskúr, samtals 199,4 fm. Í húsinu eru
5 svefnherbergi, stór stofa og borðstofa, baðherbergi, eldhús, forstofa, þvottahús og búr.
Nánari lýsing: Gengið er inn í
forstofu með flísum á gólfi og skápum.
Hol með parketi, inn af holi er
baðherbergi með sturtuklefa og glugga.
Svefnherbergi sem hefur verið nýtt sem vinnuherbergi/skrifstofa. Til vinstri úr holi er
herbergisálma. Þar eru;
rúmgott hjónaherbergi með skápum,
tvö minni herbergi og það fjórða sem er mjög rúmgott með skápum. Skápar eru frá
Brúnás. Stofa og borðstofa eru samliggjandi, björt og rúmgóð. Útgengt er úr stofu á
stóran nýlegan sólpall með skjólveggjum sem vísar í suður. Eldhúsið er rúmgott með upprunalegri innréttingu og korkflísum á gólfi. Úr eldhúsi er gengið í
þvottahús, þar innaf er
geymsla og búr. Útgengt er úr þvottahúsi á nýlega steypta stétt milli húss og bílskúrs.
Árið 2021 voru gólfefni endurnýjuð á herbergisálmu, herbergjum,holi og stofu með harðparketi frá Harðviðarvali. Nýlegar innihurðir, sólbekkir í herbergjum og stofu. Loftaþiljur voru endurnýjaðar á sama tíma í herberbergisálmu, herbergjum og holi. Bílskúrinn er tvöfaldur, mjög rúmgóður ,bjartur og snyrtilegur með harðsteypu í gólfum. Loftin eru klædd og geymsluloft yfir. Rennandi vatn,ofnar og niðurföll eru í bílskúrnum.
Tvennar innkeyrsludyr með rafmagnsopnara á annarri hurðinni. Stórt og rúmgott bílastæði er við húsið og stór lóð með ýmsa möguleika.
Gróinn garður með trjám og runnum. Rólegt og barnvænt hverfi miðsvæðis á Egilsstöðum. Stutt í skóla,leikskóla og aðra þjónustu.