TIL LEIGU nokkrar skrifstofur í þessu fallega og sögufræga húsi á horni Klapparstígs og Hverfisgötu. Á fimmtu hæð byggingarinnar eru tvær skrifstofur lausar til leigu, önnur skrifstofan er ríflega 23 fm og hin er tæpir 55 fm. Sameiginleg kaffiaðstaða og salerni er á hæðinni. Þá er laust til leigu 120 fm skrifstofurými á fjórðu hæð byggingarinnar. Um er að ræða hornskrifstofurými með flottu útsýni til norðvesturs. Í skrifstofurýminu er fundarherbergi og eldhúsinnrétting. Á sömu hæð er einnig laus til leigu um 45 fm skrifstofa. Þá eru lausar þrjár skrifstofur á annarri hæð, ein 28 fm, önnur tæplega 40 fm og sú þriðja er hornskrifstofa með flottu útsýni til norðvesturs alls tæpir 66 fm.